Heim
Fréttir
17.02.2012
Árleg inflúensa mætt
Tilkynningum til sóttvarnarlæknis um inflúensu hefur fjölgað talsvert upp á síðkastið. Líklegt er talið tilfellunum haldi áfram að fjölga á næstunni og er útbreiðslan svipuð og í fyrra.
Bæði börn og fullorðnir veikjast af inflúensu en nánari upplýsingar má finna á www.influensa.is
Staðfest tilfelli hafa öll verið af inflúensu A (H3) stofni og enn sem komið er hefur enginn greinst með svínainflúensu (inflúensu A (H1N1)) eða inflúensu B.
14.02.2012
Sumarafleysing
Heilsugæslustöðin á Dalvík auglýsir eftir móttökuritara og starfsmanni í ræstingar í sumarafleysingu.
Áhugasamir hafi samband við Anitu í síma 466 1500
15.12.2011
Tilkynning frá heilsugæslustöðinni á Dalvík
Eins og alþjóð veit hefur heilbrigðisþjónustan í landinu orðið fyrir miklum niðurskurði á fjárveitingum úr Ríkissjóði undanfarin misseri. Heilsugæslan á Dalvík hefur ekki farið varhluta af þessum niðurskurði.
Nánar
21.12.2011
Opnunartími yfir jól og áramót
Þorláksmessa opið frá 8-14
Aðfangadagur lokað
Jóladagur lokað
Annar í jólum lokað
27. des - 30. des opið frá 8-15
Gamlársdagur lokað
Nýársdagur lokað
Nánar
>>fréttasafn
Panta blóðrannsóknir Skoða gjaldskrána Endurnýja lyfseðil Fá upplýsingar um símaþjónusta lækna
Um stöðina
Starfsfólk heilsugæslunnar
UM HEILSUGÆSLUSTÖÐINA Á DALVÍK
Umdæmi Heilsugæslustöðvarinnar á Dalvík er Dalvíkurbyggð og Hrísey. Hún starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu 40/2007. Hún er til húsa við Hólaveg á Dalvík.
Grunngildi
UMHYGGJA
Við berum umhyggju fyrir sjúklingum, samstarfsmönnum og samfélaginu okkar. Við gerum það með því að sýna hjálpsemi, skilning og jákvæðni.
NÁND
Starf okkar einkennist af nánd vegna þess að við erum hluti af samfélaginu og þekkjum persónulega hagi og þarfir sjúklinganna.
ALÚÐ
Við sýnum alúð í starfi okkar með náungakærleika
FAGMENNSKA
Við leysum verkefni okkar af fagmennsku með því að sýna þjónustulund, heiðarleika og kunnáttu.
FRAMTíÐARSÝN
Heilsugæslan verður hluti af stærri einingu heilbrigðismála í sveitarfélaginu. Fagleg þjónusta í nánd við íbúa sveitafélagsins.
Reksturinn innan fjárheimilda og gagnsær. Marksækin endurmenntun starfsfólks Aukin þjónusta við íbúana MARKMIÐ 2011/2012
Rekstur innan fjárheimilda tryggður með góðu samstarfi stjórnenda, eftirfylgni og með að efla kostnaðarvitund. Sköpum vinnustað þar sem er gott að starfa og eflast faglega. Sameiginlegur rekstur Dalbæjar og Hgst. sem gefur tækifæri til að efla þjónustuna við íbúa í héraðinu. Þróum skilvirka verkferla með því að greina, kortleggja og endurbæta það sem fyrir er. Læknisþjónusta Læknisþjónusta
Við heilsugæslustöðina á Dalvík starfa tveir læknar, Guðmundur Pálsson , sem hefur verið starfandi síðan 2000, og Fjóla Björnsdóttir sem stundar sérnám í heimilislækningum.
Veitt er öll almenn læknisþjónusta. Tímapantanir hjá móttökuritara í síma 466 1500. Bráðatilfellum er sinnt samdægurs.
Læknir er á vakt allan sólarhringinn og sinnir erindum sem ekki geta beðið næsta dags. Vaktsími er 848 9777.
Læknisþjónusta
Rannsóknarstofa Endurnýa lyfseðil Gjaldskrá Símaþjónusta lækna Röntgen Sjúkraflutningar Endurnýja lyfseðil Læknisþjónusta
Endurnyja Lyfseðil
Lyfjaendurnýjanir fara fram kl. 12:00 - 14:00 alla virka daga. Hægt er að hringja í síma heilsugæslustöðvarinnar, 466 1500, og óska eftir lyfjaendurnýjun.
Til að fá lyfseðil samdægurs þarf að óska eftir því mílli kl. 09 og 11 virka daga. Einungis er hægt að fá lyfseðla fyrir lyfjum sem fólk tekur að staðaldri og læknar Heilsugæslustöðvarinnar á Dalvík hafa áður skrifað upp á.
Einnig er hægt er að óska eftir lyfjaendurnýjun með því að fylla í reitina hér að neðan. Athugið að þetta á eingöngu við lyf sem þú notar að staðaldri. Nauðsynlegt er að fram komi:
1. Nafn - Kennitala - Símí
2. Netfang
3. Efni tölvupósts: Endurnýja lyfseðil
4. Nafn lyfs og styrkur
5. Í hvaða apótek senda á lyfseðilinn
Læknisþjónusta
Rannsóknarstofa Endurnýja lyfseðil Gjaldskrá Símaþjónusta lækna Röntgen Sjúkraflutningar Rannsóknarstofa Læknisþjónusta
RANNSÓKNARSTOFA HEILSUGÆSLUSTÖÐVARINNAR
Á Heilsugæslutöðinni á Dalvík eru gerðar frumrannsóknir á þvagi m.t.t. þvagfærasýkinga og leitað eftir blóði í saur. Ýmsar blóðrannsóknir eru gerðar s.s. mæling á blóðhag, sökki, blóðsykri, blóðfitu o.fl.
Önnur sýni eru send í burtu til rannsóknar, oftast á Sjúkrahúsið á Akureyri eða Landspítala Háskólasjúkrahús. Tekið er á móti sýnum til sendinga alla virka daga frá kl: 08-10:30, nema föstudaga.
Blóðprufudagar eru tvisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga kl: 08:00. Panta þarf tíma og sjúklingar þurfa að hafa beiðni.
Læknisþjónusta
Rannsóknarstofa Endurnýja lyfseðil Gjáldskrá Símaþjónusta lækna Röntgen Sjúkraflutningar Símaþjónusta lækna Læknisþjónusta
Símaþjónusta lækna
Símatímar lækna eru alla virka daga kl. 12:00 - 14:00. Til að panta símatíma er hringt í síma heilsugæslutöðvarinnar, 4661500. Tekið er á móti pöntunum um símatíma kl 09:00 - 11:00 að morgni. Ath. takmörk eru á fjölda í símatima pr. dag.
Læknisþjónusta
Rannsóknarstofa Endurnýja lyfseðil Gjaldskrá Símaþjónusta lækna Röntgen Sjúkraflutningar Mæðravernd
Panta blóðrannsóknir Skoða gjáldskrána Endurnýja lyfseðil Fá upplýsingar um símaþjónusta lækna Mæðravernd
Markmið mæðraverndar er að stuðla
að andlegu og líkamlegu heilbrigði
móður og barns á meðgöngunni,
í fæðingunni og eftir fæðingu.
Greina áhættuþætti og vísa áfram
til viðeigandi sérfræðinga ef vandamál koma upp.
Í mæðravernd gefst verðandi foreldrum kostur á að koma reglulega á meðgöngutímanum og hitta ljósmóður og heimilislækni ef ástæða er til.
Fyrsta skoðun er oftast í kringum 12-15 vikur.
Ljósmóðir metur hvort viðbótaskoðana sé þörf.
Áhættumæðravernd er í samstarfi við fæðingalækna fæðingadeildar FSA.
Opnunartími:
Mæðraverndin er opin á mánudögum kl: 12:00-16:00 og
á föstudögum kl: 08:00-12:00.
Ljósmóðir svarar í síma eftir þörfum á þessum tímum. Tímapantanir eru alla virka daga kl: 08:00-16:00 í síma 466-1500.
Ljósmóðir er Lilja Guðnadóttir | liljag_hgdalvik.is
Fræðsluefni: ljosmodir.is | heilsugaeslan.is
Ungbarnavernd
Panta blóðrannsóknir Skoða gjáldskrána Endurnýja lyfseðil Fá upplýsingar um símaþjónusta lækna Ungbarnavernd
Ungbarnaverndin er á
þriðjudögum kl: 13:00-16:00 og á
miðvikudögum kl: 08:00-16:00
Tilgangur ungbarnaverndar er að fylgjast með vexti og þroska hins nýfædda barns. Styðja fjölskylduna í sínu nýja hlutverki og leiðbeina ef upp koma vandamál. Ungbarnavernd nær yfir fyrstu ár barnsins og er síðasta skoðun þar þegar barnið er 4ra ára.
Hjúkrunarfræðingar í ungbarnavernd eru:
Hólmfríður Amalía Gísladóttir (holmfridur_hgdalvik.is) og
Lilja Guðnadóttir (liljag_hgdalvik.is)
Nýorðnum foreldrum er boðið upp á vitjanir hjúkrunarfræðings fyrstu vikurnar eftir fæðingu barnsins. Eftir 6 vikna aldur fer ungbarnaverndin fram á Heilsugæslustöðinni og er sinnt af hjúkrunarfræðing og læknum.
Skoðanir og bólusetningar eru sem hér segir:
Yfirlit yfir skoðanir og bólusetningar í ung- og smábarnavernd
(frá 1. Mars 2010)
Bólusetningar barna
Skólaheilsugæsla Skólaheilsugæsla
Heilsufarsskoðanir Bólusetningar Tannvernd
Skólaheilsugæsla
Skólahjúkrunarfræðingur í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar veturinn 2011-2012 er Lilja Vilhjálmsdóttir .
Hún er með viðtalstíma í Dalvíkurskóla einu sinni í viku, á mánudögum frá kl. 10:15-11:15 og í Árskógarskóla einu sinni í viku, á miðvikudögum frá kl. 10:30-11:30.
Foreldrar og kennarar geta einnig nýtt sér þennan tíma.
Fyrir utan hann er hægt að ná í hana á heilsugæslustöðinni í síma
466 1500.
Skólahjúkrunarfræðingur í Grunnskóla Hríseyjar veturinn 2011-2012 er Anita Aanesen . Foreldrar geta haft samband við hana í síma 466 1500.
HEILSUVERND SKÓLABARNA
MARKMIÐ
Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmið heilsuverndar skólabarna er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra/forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð nemenda að leiðarljosi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Starfsemi heilsuverndar skólabarna er skv. lögum, reglugerðum og tilmælum sem um hana gilda. Í henni felast heilsufarsskoðanir, bólusetningar og heilbrigðisfræðsla, ásamt raðgjöf til nemenda, fjolskyldna þeirra og starfsfólks skólans.
6H HEILSUNNAR - HEILBRIGÐISFRÆÐSLA
Heilsuvernd skólabarna sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lifshátta ýmist í hópi eða á einstaklingsgrunni. Byggt er á hugmyndafræðinni um 6-h heilsunnar sem er samstarfsverkefni Heilsugæslunnar og Lýðheilsustoðvar. Áherslur fræðslunnar eru hollusta, hvíld, hreyfing, hreinlæti, hamingja, hughrekki og kynheilbrigði. Eftir fræðslu fá foreldrar sent bréf og gefst þeim þá kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu.
LYFJAGJAFIR
Sjaldgæft er að börn þurfi að taka lyf á skólatima. Þurfi börn á því að halda er foreldrum bent á að hafa samband við skólahjúkrunarfræðing og kynna sér tilmæli Landlæknis um lyfjagjafir í skólum.
SLYS OG VEIKINDI
Mikilvægt er að skólahjukrunarfræðingar viti af börnum sem eru með langvinnan og/eða alvarlegan sjúkdóm, s.s. sykursýki, ofnæmi, flogaveiki og blæðingarsjúkdóma. Ef óhapp eða slys verður á skólatima sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæslustöð eða slysadeild skulu foreldrar/forrráðamenn fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í foreldra á skólatíma barnsins. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatima sé sinnt af skólahjúkrunarfræðingi.
LÚS
Mikilvægt er að foreldrar kembi og/eða leiti að lús í hári barna sinna reglulega, t.d. vikulega. Ef upp kemur lús i skólanum er send tilkynning um það heim ásamt leiðbeiningum um meðferð. Kembing og meðferð er á ábyrgð foreldra.
LÍÐAN BARNA
Til að njóta sín í námi verður barninu að líða vel í skólanum. Heilsuvernd skólabarna hvetur foreldra til að vera vakandi yfir líðan barna sinna og spyrja þau reglulega um líðan sina. Einnig að hafa hugfast að hrós og hvatning styrkja jákvæða hegðun og auka vellíðan. Foreldrar geta ávallt leitað ráðgjafar hjá skólahjúkrunarfræðingi varðandi málefni er varða líðan og heilbrigði barnsins.
Heimild: Heilsuvernd Skólabarna
Heilsufarsskoðanir Skólaheilsugæsla
HEILSUFARSSKOÐANIR
1. bekkur
Sjonprof, heyrnarprof, hæðar- og Þyngdarmæling asamt fræðslu og viðtali um lifsstil og liðan.
4. bekkur
Sjonprof, hæðar- og þyngdarmæling asamt fræðslu og viðtali um lifsstil og liðan..
7. bekkur
Sjonprof, litaskynsprof, hæðar- og þyngdarmæling asamt fræðslu og viðtali um lifsstil og liðan.
9. bekkur
Sjonprof, hæðar- og þyngdarmæling asamt fræðslu og viðtali um lifsstil og liðan.
Nemendur i oðrum argongum eru skoðaðir ef astæða þykir til.
Heimild: Heilsuvernd Skólabarna
Skólaheilsugæsla
Heilsufarsskoðanir Bólusetningar Tannvernd Bólusetningar Skólaheilsugæsla
BOLUSETNINGAR
7. bekkur
Mislingar, rauðir hundar og hettusott (ein sprauta) og HPV gegn leghalskrabbameini hja stelpum
(3 sprautur a 6 manuðum)
9. bekkur
Mænusott, barnaveiki, stifkrampi og kighosti (ein sprauta).
Ef likur eru a að barnið se ekki að fullu bolusett þa eru foreldrar hvattir til að hafa samband við skolaheilsu- gæsluna.
Heimild: Heilsuvernd Skólabarna
Skólaheilsugæsla
Heilsufarsskoðanir Bólusetningar Tannvernd Tannvernd Skólaheilsugæsla
TANNVERND
Ollum bornum er boðin regluleg fluorskolun i 1., 7. og 10. bekk. Reglulegt eftirlit hja tannlækni er mikilvægt.
Heimild: Heilsuvernd Skólabarna
Skólaheilsugæsla
Heilsufarsskoðanir Bólusetningar Tannvernd Heimahjúkrun
Panta blóðrannsóknir Skoða gjáldskrána Endurnýja lyfseðil Fá upplýsingar um símaþjónusta lækna
Heimahjúkrun
MARKMIÐ HEIMAHJÚKRUNAR
Heimahjúkrun hefur það að markmiði að gera einstaklingum kleift að dvelja heima, við sem eðlilegastar aðstæður eins lengi og það er unnt, miðað við heilsufar viðkomandi og félagslegar aðstæður.
HVERJIR FÁ HEIMAHJÚKRUN?
Allir þeir sem búa innan læknisheraðsins og þurfa á henni að halda, geta sótt um þjónustu. Allir aldurshópar eiga jafnan rétt á henni.
HVERNIG ER SÓTT UM HEIMAHJÚKRUN?
Oft eru það læknar/hjúkrunarfólk sem sækja um fyrir viðkomandi. En það er ekkert þvi til fyrirstöðu að einstaklingurinn sjálfur hafi samband eða einhver nærkominn honum. Ekki þarf að sækja um skriflega , heldur einungis að setja sig í sambandi við þá sem sinna heimahjúkrun á heilsugæslustöðinni. Best er þá að hringja í 466 1500 og biðja um heimahjúkrun.
HVAÐ GERIR HEIMAHJUKRUN?
Þegar búið er að sækja um heimahjúkrun kemur hjúkrunarfræðingur eða sjúkraliði í heimsókn/vitjun eins fljótt og möguleiki er. Þar er metin þörfin fyrir þjónustu og viðkomandi fær siðan reglubundnar heimsóknir og aðstoð eins og samið er um. Þegar aldrað folk byrjar að fá heimahjúkrun talar það oft um hvað þeim finnst það vera mikið öryggi, að einhver komi reglulega og fylgist með hvernig heilsan og líðan er og geti gripið til aðgerða ef þörf er á. Tiðni heimsókna er misjöfn, allt frá innliti á hverjum degi og upp í það að koma einu sinni á mánuði. Fer einungis eftir þörfinni.
Algeng viðfangsefni heimahjúkrunar geta verið: Ýmiskonar eftirlit á líkamlegri og andlegri heilsu
Lyfjaeftirlit. (þegar lyfjum fjölgar eða læknir gerir lyfjabreytingar finnst einstaklingum oft erfitt að fylgja því eftir og þá er gott að láta heimahjúkrun fylgjast með því) Aðstoð við persónulegt hreinlæti Blóðþrýstingseftirlit Sykursýkiseftirlit Sárameðferðir HVENÆR ER HEIMAHJÚKRUN VEITT?
Þær föstu heimsóknir/vitjanir sem flestir hafa er sinnt á opnunartíma heilsugæslustöðvarinnar, frá klukkan 8-16. Ef upp koma tímabundnar aðstæður sem krefjast þess að sveigt sé út af þessari reglu, t.d. með heimsóknum um kvöldin eða um helgar er það rætt sérstaklega og oft í samvinnu við félagslega heimaþjónustu.
HVAÐ KOSTAR HEIMAHJÚKRUN?
Hún er einstaklingum að kostnaðarlausu.
Fréttasafn
Panta blóðrannsóknir Skoða gjáldskrána Endurnýja lyfseðil Fá upplýsingar um símaþjónusta lækna Fréttasafn
Fréttasafn
15.12.2011
Tilkynning frá heilsugæslustöðinni á Dalvík
21.12.2011
Opnunartími yfir jól og áramót
Tilkynning 18.10.2011
Tilkynning frá heilsugæslustöðinni á Dalvík.
Eins og alþjóð veit hefur heilbrigðisþjónustan í landinu orðið fyrir miklum niðurskurði á fjárveitingum úr Ríkissjóði undanfarin misseri. Heilsugæslan á Dalvík hefur ekki farið varhluta af þessum niðurskurði. Til þess að koma til móts við þessar kröfur um niðurskurð voru í fyrstu, gerðar ýmsar tilfæringar og skipulagsbreytingar innanhúss. Síðan tóku við breytingar á stöðuhlutföllum starfsfólks auk þess hefur þurft að grípa til uppsagna til að ná þeirri sparnaðarkröfu sem sett var fram.
Enn er uppi krafa um frekari niðurskurð. Þá eru þau úrræði ein eftir sem bitna á þjónustu við íbúa læknishéraðsins. Það orkar að sjálfsögðu tvímælis þar sem auglýst stefna ríkisvaldsins hefur verið að standa vörð um grunnþjónustu heilbrigðiskerfisins. Þessi frekari niðurskurður hefur leitt til þess að nú er stöðugildi heimahjúkrunar einungis 50% (1 starfskrafur í hálfri vinnu) en var áður 90%. Þessi breyting á starfshlutfalli mun leiða til þess að nauðsynlegt verður að flokka þarfir skjólstæðinga eftir alvarleika, og forgangsraða þeim. Þar mun vega þyngst hagsmunir langveikra einstaklinga og krabbameinssjúkra. Þessar aðgerðir hingað til hafa aftur á móti bitnað mest á öldruðum, sem eru í raun sá aldurshópur sem hvað besta þjónustu ætti að fá.
Við þá einstaklinga sem orðið hafa fyrir skerðingu á þjónustu viljum við segja að þetta eru neyðarúrræði sem vonandi ganga til baka sem fyrst. Einnig viljum við þakka fyrir þann skilning sem okkur hefur verið sýndur við þessar aðstæður.
Það er okkar von að til lengri tíma litið verði hægt að finna leiðir að bættri þjónustu við íbúa með því að samnýta sem best krafta alls fagfólks í byggðarlaginu.
Stjórnendur Heilsugæslustöðvarinnar á Dalvík.
<< Fréttasafn
Opnunartími 21.12.2011
Opnunartími yfir jól og áramót
Þorláksmessa opið frá 8-14
Aðfangadagur lokað
Jóladagur lokað
Annar í jólum lokað
27. des - 30. des opið frá 8-15
Gamlársdagur lokað
Nýársdagur lokað
Upplýsingar um vakthafandi lækni er á sím-
svara heilsugæslunnar: 466-1500
Stjórnendur Heilsugæslustöðvarinnar á Dalvík.
<< Fréttasafn
Hafa samband
Panta blóðrannsóknir Skoða gjáldskrána Endurnýja lyfseðil Fá upplýsingar um símaþjónusta lækna
Hafa samband
Sími 466 1500
Email hgd_hgdalvik.is
Heimilisfang Hólavegi
620 Dalvík